Barnavagnar og kerrur
Bílstólar
Bað-og skiptibúnaður
Svefnherbergið
Öryggisvörur
Matartíminn
Leiktíminn
Allt Hitt
Fatnaður
allar vörur
 fylgstu með...
fréttir og nýjungar
sendingar og 
aðsent efni
Skoða körfu 0 hlutir samtals í körfu / samtals: 0 kr.
á döfinni
  • EasyWalker kerrurnar og fylgihlutir nú fáanlegir í Fífu
    Við erum stolt yfir því að geta nú boðið EasyWalker kerrurnar og fylgihluti í Fífu. EasyWalker framleiðir frábæra tvíbura/systkinakerru sem hægt er að festa næstum alla bílstóla á grindina. Einnig eru tvær tegundir af einburakerrum í línu þeirra, 3hjóla og 4hjóla. Allar EasyWalker kerrurnar eru með sætisbaki sem leggst vel niður í svefnstöðu, vel einangraðar og léttar og þægilegar í notkun. Góð innkaupagrind er á þeim auk þess sem regnplast fylgir. Vagnpartar eru fáanlegir á þær allar og kerrupokarnir, skiptitöskurnar og glasahaldararnir frá EasyWalker eru frábærir.
  • Vörður tryggingar og Fífa í samstarf
    Nú hafa Fífa og Vörður tryggingar hafið samstarf og gefa viðskiptavinum Varðar 20% afslátt af öllum bílstólum og base-um. Til að tryggja sér afsláttinn þurfa viðskiptavinir Varðar að vera í Grunni og þeir þurfa að hafa samband við Vörð áður en viðskiptin eiga sér stað og biðja um þennan afslátt EÐA mæta beint uppí Fífu (fyrir kl.16 á virkum dögum) og við höfum samband við Vörð. Einnig bjóðum við öllum viðskiptavinum Varðar 15% afslátt af Clippasafe öryggisvörum og 10% afslátt af öllum öðrum vörum (nema Stokke og barnavögnum). Til að geta nýtt sér þann afslátt þarf fólk að sýna vátryggingaskírteini eða annarskonar staðfestingu á viðskiptum sínum við Vörð. Við hlökkum til og vonumst til að samstarfið verði farsælt og að viðskiptavinir okkar og Varðar verði ánægðir með útkomuna.
  • Vorið er komin í Fífu
    Nú er kominn vorhugur í okkur er búðin full af fallegum sumarfötum frá Snoozy, Joha, Koin, Franza og Ticket to Heaven. Einnig eigum við falleg sundföt, sumarhatta og sólgleraugu fyrir litla fólkið. Sumardagurinn fyrsti nálgast og ekki væri úr vegi að gefa fallega sumarflík í sumargjöf
  • Klúbbakvöld í Fífu og allri Húsgagnahöllinni
    Miðvikudagskvöldið 2.des milli 19.30 og 22 verður Klúbbakvöld hjá öllum verslunum Húsgagnahallarinnar. Það verða frábær tilboð og afslættir hjá öllum verslunum og hægt að gera frábær kaup fyrir jólin. Fífa verður til dæmis með 20-50% afslátt af öllum fatnaði og fullt af sértilboðum á leikföngum, kerrum, kerrupokum, ömmustólum, göngugrindum, rugguhestum.....og miklu miklu meira. Ekki missa af þessu. það er aðeins þetta eina kvöld. Hlökkum til að sjá ykkur öll
  • Hafðu samband ef þú vilt vera heppinn....
    ...Miðvikudagskvöldið 2.des verður opið lengur í Fífu og öllum hinum verslununum í Húsgagnahöllinni og þú gætir gert FRÁBÆR kaup fyrir jólin. Hafðu samband á emaili eða gegnum síma til að fá aðgang. Það verður aðeins opið fyrir þig og þína ...en bara ef þú hefur samband áður!!
  • Jólasprengja Fífu 12.-15.nóvember
    Nú erum við heldur betur að komast í jólaskap. Erum að dusta rykið af jólaskrautinu og jólatónlistinni og taka upp alveg ógrynni af nýjum vörum. Við höfum aukið vöruúrvalið enn meira og erum með fullt af fallegri gjafavöru í jólapakkann. Við ætlum að taka smá forskot á sæluna og byrja snemma þetta árið! Jólasprengja Fífu mun standa frá fimmtudeginum 12. nóv til sunnudagsins 15.nóv og verður allt fullt af frábærum tilboðum sem enginn má láta framhjá sér fara. Intersport, Augastaður, Krónan og Húsgagnahöllin ætla einnig að vera með einhver krassandi tilboð þessa helgi svo það finna sér örugglega allir eitthvað við sitt hæfi. Það verður skemmtileg jólastemmning hjá okkur með fallegri jólatónlist og auðvitað piparkökum. Látið sjá ykkur og klárið jólagjafirnar og jólafötin á börnin snemma. Svo má ekki gleyma því að það verður komið nýtt kortatímabil. Hlökkum til að sjá ykkur. Jólakveðja frá Fífu stelpunum.
  • Nýjir Brio Kombi kerruvagnar 2009 á tilboði
    Vorum að fá nýja sendingu af Brio Kombi kerruvögnum og eru þeir nú á tilboði á kr. 124.900,- og regnnylon og flugnanet fylgir. Fást í 4 litum; svörtum, svörtum/gráum, brúnum og grænum. Ekki láta þetta framhjá þér fara- aðeins 10 vagnar í boði.
  • Simo vagnarnir komnir aftur og Tripp Trapp stólarnir líka
    Nú vorum við að taka á móti Simo og Brio vögnunum, Carena kerrunum og Tripp Trapp stólunum ásamt fullt af öðrum vörum. Svo er útsalan í fullum gangi. Kíkið á okkur og gerið góð kaup. 6.08.09
  • Frábær afmælishelgi!
    Við viljum þakka frábærar viðtökur á afmæli okkar um helgina og vonum að allir hafi skemmt sér vel og fundið eitthvað við sitt hæfi. Nú höldum við ótrauð áfram og gerum okkar besta í að þjónusta ykkur hvort sem er í verslun okkar eða hér á heimasíðunni okkar. Verið ávallt velkomin
  • Fífa 30 ára
    Barnavöruverslunin Fífa er 30 ára og ætlar af því tilefni að vera með frábær afmælistilboð fimmtudag til sunnudag (7.-10.maí). Einnig verða góðir gestir sem kíkja í heimsókn til okkar. Ekki missa af þessu....fylgstu með næstu daga á www.fifa.is 06.05.09
  • Ný vefsíða Fífu komin í loftið
    Við höfum opnað nýja og glæsilega heimasíðu. Hér má finna allar upplýsingar um fyrirtækið og þjónustuna okkar. Hægt er að fylgjast með því nýjasta sem gerist hjá okkur. Tilboð verða reglulega sett inná heimasíðuna og svo er stórglæsileg vefverslun með yfir 300 vörutegundum sem hægt er að panta af. Við vonum að þið hafið gagn og gaman af þessari nýju síðu og viljum við benda á að síðan er ennþá í vinnslu og því gæti vantað einhverjar upplýsingar inná hana næstu daga. 05.05.09