Barnavagnar og kerrur
Bílstólar
Bað-og skiptibúnaður
Svefnherbergið
Öryggisvörur
Matartíminn
Leiktíminn
Allt Hitt
Fatnaður
allar vörur
ungur nemur,
gamall temur
Skoða körfu 0 hlutir samtals í körfu / samtals: 0 kr.
Gott að hafa í huga
Útiföt
Fyrsta skilyrðið þegar valin eru útiföt á barnið er að þau séu hlý. Mundu að höfuð, fætur og hendur barnsins eru sérstaklega viðkvæm fyrir kulda. Góð húfa, vettlingar og hlýjir sokkar eru efstir á listanum. Hnepptar peysur eru góður kostur, þær eru hlýjar og það er auðvelt að klæða börnin í þær. Athugið samt að á peysunni ættu ekki að vera blúndur eða borðar sem hægt er að flækja fingurna í. Í hlýju veðri eru 2 lög af fötum nóg en á veturna þarf að bæta við fatnað barnsins. Gætið þó að því að troða barninu ekki í of mikið af þröngum fötum, því þá getur barnið ekki hreyft sig og haldið á sér hita þannig.

Náttföt
Þó svo að börnin hreyfi sig ekki eins mikið og fullorðnir í svefni þarf að taka tillit til hreyfinga þeirra meðan þau sofa. Því mega náttgallar ekki hindra hreyfingar barnsins eða flækja hendur og fætur. Náttgallar ættu að vera nægilega síðir til að halda hita og hálsmálið má ekki vera of þröngt.

Föt fyrir daginn
Samfestingar eru ágætir til að halda hita á líkama barnsins. Smellur milli fótanna auðvelda bleiuskipti til muna. Sokkar eiga að vera mjúkir og rúmir svo barnið geti teygt úr tánum að vild. Bolir sem ná upp í háls ættu að vera úr mjúkri bómull eða hlýju efni. Ungabörn eiga það til að teygja snögglega úr sér og því þarf að gæta þess vel að fötin séu rúmgóð og teygjanleg.

Munið að kaupa fatnaðinn ekki of lítinn á ungabörnin, þeim finnst erfitt að hreyfa sig í fötum sem þrengir að. Hafið einnig í huga að bómullarfatnaður hleypur yfirleitt í fyrsta þvotti. Það er gott ráð að nota þvottaefni sem eru sérstaklega ofnæmisprófuð og hönnuð fyrir börn því sterkt þvottaefni getur verið mjög ertandi fyrir viðkvæma húð. Mörg börn fá útbrot af of sterku þvottaefni. Þetta þarf að hafa í huga, sérstaklega með þau föt sem eru næst húð barnsins, t.d. nærföt og náttföt. Ágætt er að nota mýkingarefni, sérstaklega á handklæði því þau geta oft rispað húð ungbarna. Varast ber þó að nota of mikið af mýkingarefni þar sem það getur ert húð barnsins. 

Munið einnig að kaupa frekar einu parinu meira af bómullargöllum og nærfatnaði; það er ótrúlegt hvað það safnast fljótt í þvottakörfuna og því betra að eiga nóg til skiptana.

Í dag er gífurlegt úrval af vönduðum og fallegum barnafatnaði í verslunum og því auðvelt að gleyma sér í innkaupaferðum. Rétt er að minna á að öryggi og þægindi skulu höfð í huga þegar barnaföt eru valin fremur en tíska. Við hjá barnalandi.is höfum tekið saman helstu sérverslanir með barnavörur á höfuðborgarsvæðinu. Þann lista er að finna undir fyrirsögninni: Sérverslanir með barnavörur.

Veljið fatnað sem þolir þvott í þvottavél og lætur ekki lit. Varist að kaupa of mikið af fötum í einu því barnið vex furðu hratt og föt sem í síðasta mánuði voru passleg verða mjög fljótt of lítil. Veljið vönduð föt fremur en þau allra ódýrustu. Ódýr barnaföt endast yfirleitt ekki eins lengi, saumar vilja rakna upp og efnið vill oft aflagast í þvotti. Það borgar sig að kaupa vönduð föt sem endast í stað þess að þurfa að henda fötunum eftir fáeina þvotta.

Skerðu ekki það allra nauðsynlegasta við nögl - yfirleitt þarf meira af öllu en foreldrar halda.

Grein tekin af www.femin.is