|
|
Barnavagnar og kerrur
Bílstólar
>> Bílstólar
Fylgihlutir í bílinn
Bað-og skiptibúnaður
Svefnherbergið
Öryggisvörur
Matartíminn
Leiktíminn
Allt Hitt
Fatnaður
allar vörur
|
Skoða körfu 0 hlutir samtals í körfu / samtals: 0 kr.
Bílstólar
|
|
MIKIÐ LITAÚRVAL. Maxi-Cosi CabrioFix er einstaklega léttur ungbarnabílstóll (einungis 3,2 kg.) Góð hliðarvörn. Þessi stóll hefur ávallt komið vel út í öryggisprófum. Maxi Cosi CabrioFix kemur með sólskyggni og höfuðbúða sem gott er nota fyrstu mánuði barnsins. Í stólnum einnig ungbarnainnlegg sem nauðsynlegt er að nota fyrstu mánuði barnsins, sem gerir það að verkum að barnið er í meiri liggjandi stöðu frekar en sitjandi og eykur þægindi barnsins. Höfðupúðinn og ungbarnainnleggið er síðar tekið úr og verður stóllinn dýpri fyrir vikið. Áklæði má taka af og þvo. Hægt er að fá flotta poka frá maxi cosi í stólinn sem er alveg tilvalið fyrir veturinn, sjá fylgihluir fyrir bílstóla. Hægt er að smella stólnum á allar kerrur frá Quinny og Maxi Cosi, og margar fleiri. Hægt er að festa MC CabrioFix á Easybase(2) og Familyfix base frá Maxi Cosi. Ef að stóll, base og poki er keypt saman, gefst 10% afsláttur af heildarpakkanum.
Coming soon
|
|
|
|
Maxi Cosi Priori XP veitir hámarkshliðarvörn í höfuðpúðum. Sérstaklega góð svefnstaða, nokkrar hallastillingar.Auðvelt er að hækka beltin í stólnum. Hægt er að kaupa aukalega höfuðpúða fyrir þau allra yngstu. Áklæði má taka af og þvo.
Coming soon
|
|
|
|
2011 model. Aukin þægindi. Mikið litaúrval í boði. Tobi er í flokki 9-18kg. bílstóla, þ.e. frá ca. 9 mán/1árs - 4 ára. Nú er búið að gera þennan vinsæla stól enn betri. Enn betra beltakerfi. Góð hallastilling, auk þess er hann með öflugri hliðarvörn. Auðvelt að hækka upp beltin. Tobi er hannaður með það að markmiði að vera mjög notendavænn, þar sem mjög auðvelt er að festa hann í bílinn og mjög þægilegur í notkun. Áklæði má taka af og þvo.
Coming soon
|
|
|
|
Uppseldur! væntanlegur í Febrúar! Mobi er bakvísandi bílstóll frá Maxi Cosi. Mobi er einungis hægt að snúa bakvísandi í aksturstefnu. Öflug hliðarvörn og góð hallastilling. Hægt er að nota stólinn frá ca. 9 mán og fram að 3-5 ára aldurs. Hægt er að taka áklæði af og þvo. Mobi stóllinn er T-merktur, en T merkið byggir á sænskum reglum og uppfyllir mjög strangar öryggiskröfur. Mobi stóllinn er hannaður fyrir scandinaviu markað. Nokkrir litir í boði.
Coming soon
|
|
|
|
Mjög stöðugur. Easy base er einskonar sökkull sem hægt að nota undir Maxi-Cosi CabrioFix og Pebble ungbarnabílstóla. Easy base2 er fest með 3 punkta öryggisbelti bílsins. Einstaklega þægileg lausn, auðveldar og flýtir festingu sólsins í bíl. Veittur er 10% afsláttur þegar tekið er saman cabriofix / pebble, base og poki í stól.
Coming soon
|
|
|
|
Bílstóll og Base frá Brio. Hægt er að festa Base-inn með 3 punkta belti bílsins eða með IsoFix festingum. Hægt er að festa Brio Primo bílstólinn á Brio Sing kerruna. Stóllinn kemur mjög vel út úr öryggiskönnunum og er einn söluhæsti ungbarnastóllinn í Svíþjóð
Coming soon
|
|
|
|
Nýtt frá Brio. Brio Caro er í flokki 15-36kg. Hentar vel fyrir 3 ára og eldri. Glasahaldari er innbyggður í stólnum. Auðvelt er að taka álæði af og þvo. Ráðlagt er að nota bakið með sessunni eins lengi og hægt er, en hægt er að hækka bakið vel, allt að 1.50 á hæð. Hægt er að taka bakið af og nota bara sessuna.
Coming soon
|
|
|
|
Bílstóllinn kemur með 5 puntka belti fyrir börn upp að 15/18 kg og þrengingu. Beltin eru síðar tekin úr og bílbelti notuð. Tvær hallastillingar eru á stólnum. Bakastillingar eru 3.
Coming soon
|
|
|
|
Flottur bílstóll frá Maxi-Cosi fjölskyldunni. Axiss stóllinn hentar þeim sem eru á hærri bílum s.b.r jeppum, jepplingum o.fl. þar sem hægt er að snúa stólnum í 90° hring, og því auðveldara að festa barnið í bílstólin. Góð hliðavörn og hallastilling. Auðvelt að hæka beltin, en þau fylgja með þegar höfuð púðinn er hækkaður.
Coming soon
|
|
|
|
Enn meiri þægindi. Nýjasti ungbarna bílstóllinn frá Maxi Cosi. Ótrúlega flottur og góður stóll. Sólskyggni fylgir með. Pebble er dýpri en aðrir ungbarnastólar frá Maxi Cosi, auk þess er Pebble með enn betri bólstrun á beltum. Stóllinn er allur með gúmmí kanti. Þyngd stóls er 4,2 kg. Easy base(2) og Familifyx passa undir Pebble. Hægt er að fá flotta bílstóla poka í stíl við stólinn, pokarnir eru einkar góðir yfir veturinn. Veittur er 10% afsláttur ef keypt er saman Stóll, base og bílstólapoki (þegar allt er tekið saman).
Coming soon
|
|
|
|
Bílsessa frá Brio. Fyrir börn frá 15 - 36 kg. bílsessan er með öryggisól þannig að belti bílsins er hægt að stilla í axlarhæð barnsins.
Coming soon
|
|
|
|
Nýjasti bílstóllinn frá Maxi Cosi. Pearl er hluti af Maxi Cosi fjölskyldunlínunni sem kom nýverið á markaðinn og fékk hin margrómuðu "innovation awards 2009. Pearl tekur við af ungbarnastólnum Cabrio Fix 0-13 kg eða Pebble 0-13 kg og festist eingöngu í bílinn með beisi sem heitir familyfix og er Isofixbase. Familyfixið passar bæði á CabrioFix ungbarnastólinn, Maxi Cosi Pebble og svo á stól númer 2 Maxi Cosi Pearl. Ef fjölskyldupakkinn er keyptur saman fæst afsláttur frá heildarverði. Athugið að uppgefið verð er án familyfix base.
Coming soon
|
|
|
|
FamilyFix Base er nýr á markaði frá Maxi-Cosi. Festist einungis með IsoFix festingum. Nýjung; nú er hægt að halla ungbarna bílststólnum á basinu. Stöðugur og góður base sem passar bæði fyrir Maxi-Cosi CabrioFix og Pebble ungbarna bílstólana. En einnig er hægt að nota Base-inn undir Pearl (9-18 kg) stólinn frá Maxi-Cosi.
Coming soon
|
|
|
|
Enn betri útgáfa af hinum vinsæla Rodi XR. Er að koma mjög vel út úr öryggisprófunum. Í Rodi Airprotect stólnum er áherslan á enn meiri höfuðvörn með loftpúðum í efsta hluta bakstykkisins. Rodi Airprotect stóllinn er sessa með baki. Auðveld hæðastilling og hægt er að setja stólinn í hallandi stillingu.
Coming soon
|
|
|
|
Ungbarnabílstóll frá Maxi Cosi. MC Citi SPS er mjög léttur og meðfærilegur ungbarnabílstóll. Einungis 2,6 kg á þyngd. Ekki er hægt að festa MC Citi stólinn á Base. Hægt er að festa MC Citi SPS stólinn á allar kerrur frá Maxi Cosi og Quinny.
Coming soon
|
|
|
|
Bílstóllinn sem stækkar með barninu. Passar í flest alla bíla. Brio Zento er frá 0 - 25 kg. Frá fæðingu til ca. 5 ára. Fimm punkta belti. Góður höfuðstuningur. Góð hliðarvörn. Hægt að hafa bakvísandi upp í 25 kg. Framvísandi frá 15 - 18 kg með 5 punkta belti stólsins. Frá 15 - 25 kg. (framvísandi) hægt að nota sem sessa og bak, 3 punkta belti bíslsins notað til að festa barnið. ECE R44 Rev04 viðurkenndur.
Coming soon
|
|
|
|
Upplýsingar birtast fljótlega um þessa vöru
Coming soon
|
|
|
|
Nýr stóll frá Maxi Cosi. Opal er bak-og framvísandi bílstóll. Maxi Cosi Opal er bakvísandi frá fæðingu og upp að 13 kg, Og getur verið framvísandi frá 9 - 18 kg. 5 hallastillingar á stólnum þegar hann er framvísandi. Ungbarnainnlegg fylgir með stólnum og notast upp í ca. 5kg. Ótrúlega flottur og góður stóll með góðri bólstrun. Auðvelt að hækka upp belti. Innbyggður höfuðpúði. Ekki er mælt með því að láta börn snúa framvísandi í bílstólnum fyrr en í fyrsta lagi um 1 árs aldur.
Coming soon
|
|
|
|
Nýjasti stóllinn frá Maxi Cosi fyrir 15 - 36 kg. Ferofix stóllinn er festur með Isofix festingum í bíllinn auk þess að vera með loftpúða í höfuðpúðum stólsins. Góður stóll með hámarks hliðarvörn í höfuðpúðum. Auðveld hæðarstilling og stóllinn er með möguleika á smá hallastillingu. Til í nokkrum litum.
Coming soon
|
|
|
|
|