Fífa er fjölskyldufyrirtæki sem kappkostar við að veita góða og persónulega þjónustu.
Fífa er með 30 ára reynslu í sölu á öllu sem viðkemur börnum. Við erum umboðsaðili fyrir frábær vörumerki eins og Brio, Simo, Maxi-Cosi, Quinny, EasyWalker, Baby Björn, Stokke, Dr.Browns og fleiri heimsþekkt gæða merki.
Nú er opið alla 7 daga vikunnar, virka daga frá 10-18, laugardaga frá 10-16 og sunnudaga frá 13-17.
Vöruúrvalið er okkur mikið stolt og vonumst við til þess að viðskiptavinir okkar verði ánægðir með allt það sem við getum boðið upp á .
Verslunin Fífa er stofnuð árið 1978. Fyrstu 25 árin var hún staðsett að Klapparstíg 25-27. Í Nóvember 2003 flutti verslunin í Húsgagnahöllina að Bíldshöfða 20 í 360 fermetra verslunargólf auk skrifstofu og lagers. Verslunarrýmið var síðan stækkað í 430 fermetra sumarið 2011.
Viðbrögð viðskiptavina okkar hafa verið frábær vegna þessa enda er mikill munur á allri aðkomu og bílastæðin ekki vandamál lengur.
Fífa opnaði sína aðra verslun á Akureyri, Kaupvangsstræti 1, í nóvember 2011. Með opnun á þeirri verslun höfum við nú aukið þjónustuna við landsbyggðina til muna. Sambærilegar vörur eru fáanlegar þar og í verslun Fífu í Reykjavík.
Vonandi hefur tekist vel til með heimasíðu þessa. Hún verður í stöðugri endurskoðun en gott er að hafa í huga að vefverslunin er alls ekki tæmandi listi yfir vöruúrvalið hjá okkur og verð geta breyst án fyrirvara en við munum fagna ábendingum ykkar.
Bæði í verslun okkar og á vefversluninni bjóðum við uppá ýmsa greiðslumáta;
-að staðgreiða í verslun okkar hvort heldur sem er í peningum eða með korti
-að millifæra inná reikning okkar 0318-26-690909, kennitala 690909-0220
-Kortalán Visa og Euro. Greiðsluskipting í 3-36 mánuði. Lántaki greiðir að auki lántökugjald og vexti sem kortafyrirtækið setur upp. Sjá nánar um Kortalán á www.valitor.is
-að greiða í póstkröfu
Sé pantað af vefverslun okkar getum við einnig boðið mismunandi sendingarmáta á kostnað viðtakanda:
-að senda í póstkröfu. sjá gjaldskrá póstsins hér; http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-123/138_read-759/
-að senda með Flytjanda, Landflutningum, flugi eða öðru flutningsfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
-að fá sent með bíl af sendibílastöð innan höfuðborgarsvæðisins.
Öllum er velkomið að skila og skipta keyptum vörum innan tveggja vikna frá kaupdegi séu þær ónotaðar og í upprunalegum umbúðum. Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum né base-um.
Kærar kveðjur,
Starfsfólk Fífu
Framkvæmdastjóri: Tinna Jóhannsdóttir, fifa@fifa.is, sími 6166096
Verslunarstjóri Bíldshöfða: Guðrún Ósk Arnórsdóttir, sími 5626500
Verslunarstjóri Akureyri : Helena Björk Magnúsdóttir, sími 4626500